Skilmálar
Síðast uppfært 11. október 2026
Skilmálar þessir gilda þegar þú notar Gróu og þegar þú kaupir Gróu Pro. Seljandi er Helgi Þór Jóhannsson, einyrki, kt. 040292-3229, Hraunbær 34, 810 Hveragerði, support@vaki.chat.
Hvað Gróa er
Gróa greinir plöntu af mynd, segir hvað gæti verið að henni og hvað er hægt að gera, með ráðum úr heimildasafni þar sem hvert ráð ber heimild sína. Greining, eiturvirkni, friðun og annað á greiningarskjánum er ókeypis.
Gróa Pro
Með Gróu Pro getur þú spjallað við Gróu um plönturnar þínar og sent henni myndir og myndbönd af því sem er að. Svörin byggja á heimildasafninu og segja hvaðan þau koma. Daglegt hámark á fjölda svara ver þjónustuna gegn misnotkun.
Verðið er 4,99 € á mánuði eða 39,99 € á ári, greitt í evrum. Bankinn þinn reiknar krónurnar á sínu gengi.
Paddle.com Market Ltd er seljandi Gróu Pro gagnvart þér (merchant of record). Paddle tekur við greiðslunni, sér um virðisaukaskatt og gefur út kvittun, og kaupskilmálar Paddle gilda um sjálf kaupin. Gróa sér aldrei kortanúmerið þitt.
Inneign sem þú vinnur þér inn með því að senda myndir af plöntum sem okkur vantar er eitt samtal við Gróu hver. Hún hefur ekkert peningalegt gildi, verður ekki flutt á annan og fellur niður ef aðganginum er eytt.
Uppsögn
Þú getur sagt upp hvenær sem er, með hlekknum í kvittun frá Paddle eða með því að skrifa á support@vaki.chat. Gróa Pro gildir út tímabilið sem þú hefur greitt fyrir og ekki er rukkað aftur. Endurgreiðslur eru útskýrðar í endurgreiðslustefnunni.
Ef þú eyðir aðganginum er áskriftinni sagt upp strax og því sem eftir er af tímabilinu lýkur með henni. Viljir þú fá endurgreitt, biddu um það áður en þú eyðir aðganginum.
Ráð, ekki fagmaður
Ráð Gróu eru almenn og koma úr heimildasafni. Þau koma ekki í stað garðyrkjufræðings, dýralæknis, læknis eða fagmanns í meðferð varnarefna. Greining af mynd getur verið röng: Gróa sýnir þrjár líklegustu tegundirnar með líkum og segir þegar hún er ekki viss. Athugaðu áður en þú gerir eitthvað, sérstaklega áður en þú notar efni, og farðu eftir merkingum vörunnar. Hluti heimildasafnsins hefur ekki enn verið yfirfarinn af garðyrkjufræðingi eða dýralækni, og appið segir það þar sem það á við.
Gróa segir aldrei að planta sé örugg. Þegar ekki er vitað hvort planta er eitruð stendur að það sé ekki vitað, aldrei að hún sé örugg.
Ef manneskja eða dýr hefur borðað plöntu skaltu ekki bíða eftir appinu. Á Íslandi skaltu hringja í Eitrunarmiðstöð Landspítala í síma 543 2222, sem er opin allan sólarhringinn, eða í 112 ef einkennin eru alvarleg. Fyrir dýr skaltu hringja í dýralækni.
Gróa segir aldrei að planta eða athöfn sé lögleg. Hún vitnar í reglur um tilteknar tegundir og lætur þar við sitja, því hvort regla á við fer eftir því hvar þú ert og undanþágum sem appið sér ekki. Þú berð ábyrgð á að fara að lögum þar sem þú ert.
Myndirnar þínar og efni
Þú átt myndirnar þínar og það sem þú skrifar. Þú leyfir Gróu að geyma það og vinna með það til að veita þjónustuna. Myndir eru aðeins notaðar til að þjálfa líkan Gróu ef þú hefur leyft það. Myndir sem sendar eru til greiningar fara til Kindwise og skilmálar Kindwise gilda um þær, eins og lýst er í persónuverndarstefnunni.
Ekki nota Gróu til að reyna að komast í gögn annarra, til að safna efni hennar sjálfvirkt eða á hátt sem ógnar þjónustunni fyrir aðra. Við getum lokað aðgangi sem er notaður þannig.
Ef eitthvað fer úrskeiðis
Við lofum ekki að Gróa sé alltaf tiltæk; hún byggir á þjónustu sem við stjórnum ekki. Láttu okkur vita á support@vaki.chat og við lögum það sem hægt er að laga.
Ábyrgð okkar gagnvart þér takmarkast við það sem þú greiddir fyrir Gróu Pro síðustu 12 mánuði. Ekkert hér takmarkar réttindi þín sem neytanda samkvæmt íslenskum lögum og EES-rétti, né ábyrgð sem ekki má takmarka að lögum.
Lög og varnarþing
Um skilmálana gilda íslensk lög og ágreiningur fer fyrir íslenska dómstóla. Það tekur ekki af þér rétt sem neytendalög í þínu heimalandi veita þér.
Ef skilmálarnir breytast segjum við þér frá því áður en breytingin gildir um tímabil sem þú hefur greitt fyrir.